Þrír á förum frá Man City - Dalot orðaður við Real Madrid - Framherji West Ham til Milan?
   fös 14. febrúar 2020 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Jafnt í stórleik Valencia og Atletico
Valencia 2 - 2 Atletico Madrid
0-1 Marcos Llorente ('15)
1-1 Gabriel Paulista ('40)
1-2 Thomas Partey ('43)
2-2 Geoffrey Kondogbia ('59)

Valencia og Atletico Madrid skildu jöfn í Meistaradeildarslag kvöldsins í spænska boltanum.

Marcos Llorente kom gestunum frá Madríd yfir snemma leiks og jafnaði brasilíski varnarmaðurinn Gabriel Paulista metin eftir hornspyrnu a 40. mínútu.

Gleði heimamanna varði þó ekki lengi því Thomas Partey eyðilagði veisluna með frábæru marki fyrir leikhlé.

Heimamenn í Valencia voru þó ekki búnir að gefast upp og náði Geoffrey Kondogbia að jafna eftir aukaspyrnu frá Dani Parejo.

Meira var ekki skorað í jöfnum leik og lokatölur 2-2. Atletico er í fjórða sæti með 40 stig, tveimur fyrir ofan Valencia sem situr í sjötta sæti.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 17 14 1 2 49 20 +29 43
2 Real Madrid 17 12 3 2 34 16 +18 39
3 Villarreal 15 11 2 2 31 13 +18 35
4 Atletico Madrid 17 10 4 3 30 16 +14 34
5 Espanyol 16 9 3 4 20 16 +4 30
6 Betis 15 6 6 3 25 19 +6 24
7 Athletic 17 7 2 8 15 22 -7 23
8 Celta 16 5 7 4 20 19 +1 22
9 Sevilla 16 6 2 8 24 24 0 20
10 Getafe 16 6 2 8 13 18 -5 20
11 Elche 16 4 7 5 19 20 -1 19
12 Alaves 16 5 3 8 14 17 -3 18
13 Vallecano 15 4 5 6 13 16 -3 17
14 Mallorca 16 4 5 7 18 23 -5 17
15 Real Sociedad 16 4 4 8 20 24 -4 16
16 Osasuna 16 4 3 9 14 20 -6 15
17 Valencia 16 3 6 7 15 25 -10 15
18 Girona 16 3 6 7 15 30 -15 15
19 Oviedo 16 2 4 10 7 26 -19 10
20 Levante 15 2 3 10 16 28 -12 9
Athugasemdir