Fotbolti.net
14.02.21 - 15:53
Ívan Guðjón Baldursson

England: Jafnt hjá West Brom og Man Utd

England: Jafnt hjá West Brom og Man Utd
Canon

Mynd: Getty Images

West Brom 1 - 1 Man Utd
1-0 Mbaye Diagne ('2)
1-1 Bruno Fernandes ('44)
West Bromwich Albion og Manchester United gerðu jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Heimamenn í West Brom komust yfir snemma leiks þegar Mbaye Diagne skoraði strax á annarri mínútu.

Man Utd átti erfitt með að koma sér í færi en portúgalski snillingurinn Bruno Fernandes náði að jafna skömmu fyrir leikhlé eftir fyrirgjöf frá Luke Shaw.

Síðari hálfleikurinn var áhugaverður þar sem bæði lið fengu góð færi en inn vildi boltinn ekki. Diagne gat nokkrum sinnum stolið sigrinum fyrir heimamenn og átti Harry Maguire skalla í stöng á lokasekúndunum en lokatölur 1-1.

West Brom er áfram í fallbaráttunni á meðan Man Utd er sjö stigum eftir toppliði Man City, sem á leik til góða.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.