Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. febrúar 2021 09:00
Victor Pálsson
Messi búinn að jafna leikjamet Xavi
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, jafnaði leikjamet Xavi í gær er liðið vann öruggan 5-1 sigur á Alaves.

Messi hefur verið heitur fyrir framan markið undanfarið og skoraði tvennu fyrir Barcelona í sigrinum.

Argentínumaðurinn hefur nú spilað 505 leiki fyrir Barcelona í La Liga og er það jafn mikið og Xavi gerði á sínum tíma.

Alls hefur Messi spilað 759 leiki fyrir Börsunga en Xavi spilaði 767 leiki í öllum keppnum á miðju liðsins.

Xavi er af mörgum talinn einn besti miðjumaður sögunnar en hann starfar í dag sem þjálfari í Katar hjá Al Sadd.

Xavi lék með Barcelona frá 1998 til 2015 og á einnig að baki 133 landsleiki fyrir Spán.
Athugasemdir
banner
banner
banner