Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. mars 2019 19:29
Arnar Helgi Magnússon
KR lánar Adolf Bitegeko til Keflavíkur (Staðfest)
Mynd: KR
KR hefur lánað Adolf Mtasingwa Bitegeko til Keflavíkur. Adolf kemur frá Tansaníu en hann gekk í raðir KR fyrir síðasta sumar.

KR ákvað að semja við Adolf eftir að leikmaðurinn fór með liðinu í æfingaferð til Spánar fyrir síðasta tímabil.

„Þetta er allt öðruvísi menning og allt annað hitabelti. Þessir strákar sem eru að koma frá Afríku þurfa yfirleitt 1-2 ár til að aðlagast. Maður þekkir það bara frá Noregi og víðar," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, um Adolf fyrir síðasta tímabil.

Hann talaði einnig um það að hann væri framtíðarleikmaður KR. Á ferli sínum hefur Adolf leikið leiki með yngri landsliðum Tansaníu.
Leikmaðurinn lék tvo leiki með KR í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili.

Adolf er fæddur árið 1999 og spilar sem miðjumaður.
Athugasemdir
banner