fim 14. mars 2019 12:13
Elvar Geir Magnússon
Militao til Real Madrid (Staðfest)
Eder Militao.
Eder Militao.
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur staðfest kaup á varnarmanninum Eder Militao sem kemur til félagsins frá Porto í sumar.

Þessi 21 árs leikmaður hefur einnig verið orðaður við Manchester United en sagt er að hann hafi haft 50 milljóna evra riftunarákvæði í samningi sínum.

Hann hefur gert sex ára samning við Real Madrid.

Militao er Brasilíumaður sem kom til Porto síðasta sumar frá Sao Paulo. Hann hefur spilað 31 leik fyrir Porto og vakið athygli fyrir vasklega framgöngu.

Militao er hægri bakvörður en getur einnig spilað sem miðvörður eða varnartengiliður.

Þess má geta að Real Madrid leikur sinn fyrsta leik eftir endurkomu Zinedine Zidane á laugardaginn, gegn Celta Vigo.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner