Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 14. mars 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vilhelm Bjarki í Víði (Staðfest)
Mynd: Alberto Larrea
Víðir Garði heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í 3. deild karla í sumar.

Vilhelm Bjarki kemur til Víðis frá KR þar sem hann spilaði í 2. flokki.

Vilhelm er á 20. aldursári og það verður að sjá hvernig honum vegnar í 3. deildinni með Víði.

„Ungur og efnilegur leikmaður hér á ferð og við bjóðum hann velkominn í Víðisfjölskylduna," segir í tilkynningu frá Víði sem féll úr 2. deild síðasta sumar.

Í gær sögðum við frá því að Víðir hefði krækt í Óliver Berg Sigurðsson á láni frá Grindavík.
Athugasemdir
banner
banner