Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. mars 2021 11:55
Ívan Guðjón Baldursson
Óliver Berg lánaður til Víðis (Staðfest)
Mynd: Víðir
Víðir Garði var að tryggja sér efnilegan kantmann að láni frá Grindavík.

Sá heitir Óliver Berg Sigurðsson og er fæddur 2001. Hann á fjóra keppnisleiki að baki með meistaraflokki Grindavíkur en þar áður lék hann með GG í fjórðu deildinni.

„Það gleður okkur mikið að fá þennan unga, efnilega leikmann til okkar í Víðisfjölskylduna," segir í færslu Víðis á Facebook.

„Hann hefur komið sterkur inn í hópinn og spilað vel með okkur i Lengjubikarnum."

Víðir féll úr 2. deild í fyrra og mun því leika í 3. deildinni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner