Vanda ánægð með samninginn: Hann heillaði okkur upp úr skónum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég held að þarna höfum við náð í algjöran stórlax," segir Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ. Age Hareide var í dag staðfestur sem nýr landsliðsþjálfari Íslands.
Vanda leiddi ferlið að leita að nýjum landsliðsþjálfara, ásamt Ívari Ingimarssyni formanni landsliðsnefndar og Jörundi Áka Sveinssyni yfirmanni fótboltamála.

„Mér fannst þetta ganga framar öllum vonum. Við vorum að vanda okkur og gera hlutina faglega en vorum með klukkuna tifandi vegna júníleikjanna."
Vanda segir að launatölur Hareide séu trúnaðarmál og vildi ekki svara því hvort hann væri á umtalsvert hærri launum en Arnar Þór Viðarsson var á.
„Við erum mjög ánægð með samninginn og okkur þykir Age mjög sanngjarn. Hann er á sama tíma mjög metnaðarfullur og hefur trú á því að við getum komist á EM. Hann gerir sér samt grein fyrir því að við erum lítið samband. Hann heillaði okkur upp úr skónum. Við hittum hann í Osló og við vorum strax mjög hrifin."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan. Þar ræðir Vanda nánar um þjálfaraleitina, um aðstoðarmenn Hareide og einnig um Gylfa Þór Sigurðsson og hans mál.