Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   þri 14. apríl 2026 22:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Eimskip
Thelma Karen í leiknum í kvöld.
Thelma Karen í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þetta var hellað gaman," sagði Thelma Karen Pálmadóttir eftir sinn fyrsta byrjunarliðsleik með landsliðinu.

Thelma Karen verður 18 ára gömul eftir nokkra daga en uppgangur hennar hefur verið hraður. Í kvöld tók hún næsta skref með landsliðinu.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Úkraína

„Mér leið bara vel, mér fannst alltaf eins og við værum að fara að vinna þennan leik," sagði Thelma við Fótbolta.net eftir 1-0 sigur á Úkraínu.

Thelma Karen fór fyrir nokkrum mánuðum í atvinnumennsku til Svíþjóðar og er núna búin að vinna sér inn sæti í landsliðshópnum.

„Þetta hefur gerst frekar hratt. En bara mjög gaman og ég tek ekkert eftir því, ég er bara að njóta. Lífið er búið að breytast til hins betra, þetta er það skemmtilegasta sem ég geri."

Það vantaði nokkrar vinkonur í stúkuna í kvöld.

„Helmingur af vinkonum mínum eru í U19 landsliðinu út í Serbíu. Ég vonandi hitti þær á laugardaginn. Ég vona að þeim gangi vel, áfram Ísland," sagði Thelma létt að lokum.
Slapp
banner