Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   þri 14. apríl 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tufegdzic bræður eftirsóttir - Æfðu með Malmö
Stefan Tufegdzic
Stefan Tufegdzic
Mynd: Aðsend
Þeir Stefan og Novak Tufegdzic stóðu sig vel á reynslu hjá sænska félaginu Malmö fyrr í vetur og fengu aftur boð um að koma til félagsins í byrjun mánaðar.

Þeir Stefan og Novak, sem eru í yngri flokkum Vals, æfðu með Malmö og skoðuðu aðstæður.

Stefan Tufegdzic er sóknarmaður, fæddur árið 2010 og er að spila með 2. og 3. flokki Vals.

Stefan lék eining nokkrar mínútur í vetur með meistaraflokki Vals í Lengjubikarnum þegar hann kom inn á gegn Þór á Akureyri. Hann æfði með U17 ára liðinu hjá Malmö.

Novak Tufegdzic er miðjumaður, fæddur árið 2012 og er að spila með 3. og 4. flokki Vals.

Hann æfði með U15 ára liðinu hjá Malmö og spilaði með liðinu í Torneo Pecci mótinu sem var haldið var í Rimini á Ítalíu.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi frá fleiri félögum í Skandinavíu á Tufegdzic bræðrum.

Þeir eru að sjálfsögðu synir Srdjan Tufegdzic, Túfa, sem var þjálfari Vals á síðasta tímabili. Túfa er í dag þjálfari sænska liðsins Värnamo.
Slapp
banner