Varnarmaðurinn, Gísli Páll Helgason hefur gengið í raðir Kórdrengja. Þetta staðfestu Kórdrengir á Facebook síðu sinni.
Gísli Páll lék átta leiki með Þór í Inkasso-deildinni síðasta sumar en hefur ekkert leikið með liðinu á undirbúningstímabilinu.
Fyrir utan Þór hefur hann einnig leikið með Breiðabliki sumrin 2012, 2013 og 2014.
Kórdrengir eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í 3. deildinni en liðið hefur styrkt sig gríðarlega fyrir tímabilið með reynslu miklum leikmönnum. Þeim var spáð 1. sætinu í 3. deildinni í spá þjálfara fyrir deildina.
Athugasemdir