Nik: Stökkvum í djúpu laugina og sjáum hvort við syndum
Auglýsing

Þegar sætinu í Pepsi Max-deildinni var fagnað í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur Reykjavík fer í dag í heimsókn til Vestmannaeyja í lokaleik fyrstu umferðar Pepsi Max-deildar kvenna.
Þetta verður athyglisverður slagur í ljósi þess að báðum þessum liðum er spáð fallsæti í flestum spá, þar á meðal hér á Fótbolta.net.
„Okkur líður vel. Stelpurnar hafa verið að standa sig mjög vel á æfingum og það er mikil spenna í loftinu fyrir því að spila þetta tímabil," sagði Nik Chamberlain, þjálfari nýliða Þróttar, í samtali við Fótbolta.net.
Undirbúningstímabilið hefur verið skrítið vegna kórónuveirunnar, en Nik segir að tímanum hafi ekki verið sóað og liðið sé í góðri æfingu, þó ekki mikilli leikæfingu.
„Kórónuveirufaraldurinn hefur ekki hjálpað því þú vilt fá leiki til að sjá á hvaða stað þú ert en þetta snýst núna um að stökkva í djúpu laugina og sjá hvort við syndum," segir Nik, en hann býst við erfiðum leik í Vestmannaeyjum og erfiðri baráttu þar.
1. umferð Pepsi Max-kvenna
föstudagur 12. júní
19:15 Valur-KR (Origo völlurinn)
laugardagur 13. júní
13:00 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)
15:00 Þór/KA-Stjarnan (Þórsvöllur)
17:00 Fylkir-Selfoss (Würth völlurinn)
sunnudagur 14. júní
16:00 ÍBV-Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
Sjá einnig:
Ný herferð fyrir Pepsi Max-kvenna: Mjög jákvætt