Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 14. júní 2022 21:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þegiði trúðarnir ykkar" - Versta tapið í 94 ár
Southgate er sagður spila hundleiðilegan fótbolta.
Southgate er sagður spila hundleiðilegan fótbolta.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Carragher kemur þjálfaranum til varnar.
Carragher kemur þjálfaranum til varnar.
Mynd: Getty Images
Tapið í kvöld er það versta sem Englendingar hafa mátt þola á heimavelli síðan 1928 - í 94 ár.

Englendingar voru niðurlægðir á heimavelli, þeir töpuðu 4-0 fyrir Ungverjalandi. England var mikið sigurstranglegri aðilinn fyrir leikinn en þeir voru hugmyndasnauðir í leik sínum á meðan Ungverjar spiluðu sem liðsheild.

Núna er Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, gagnrýndur harðlega og mikið af fólki sem vill einfaldlega losna við hann áður en HM í Katar fer fram næsta vetur.

Southgate tók við Englandi eftir hörmungarnar á EM 2016 þar sem liðið tapaði gegn Íslandi í 16-liða úrslitunum. Undir stjórn Southgate hefur liðið farið í undanúrslit á EM og í úrslitaleik EM þar sem tap var niðurstaðan gegn Ítalíu.

En samt er mikið ósætti með Southgate meðal almennings í Englandi; hann er með marga frábæra leikmenn í höndunum en er sagður spila ótrúlega leiðinlegan fótbolta.

Stuðningsfólk Englands á Molineux lét Southgate heyra það á leiknum í kvöld. „Þú veist ekkert hvað þú ert að gera var sungið," var sungið.

Carragher segir þessu fólki að þegja
Jamie Carragher, fyrrum landsliðsmaður Englands, tók sig til og svaraði þessu stuðningsfólki á samskiptamiðlinum Twitter.

„Þegiði trúðarnir ykkar," skrifaði Carragher og hélt áfram. „Þessi þjálfari er búinn að ná besta árangri okkar á stórmótum síðan 1966."

Southgate spilar ekki skemmtilegasta fótbolta í heimi, alls ekki. En þessi fótbolti hefur verið árangursríkur þegar á stórmót er komið. Hann verður ekki rekinn fyrir mótið í Katar, en miðað við hvernig umræðan er orðin þá er líklegt að það verði hans síðasta mót ef liðið fer ekki allavega í undanúrslit.



Athugasemdir
banner
banner
banner