Milner frá Liverpool til Brighton (Staðfest)

James Milner.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

James Milner.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
James Milner mun ganga í raðir Brighton þegar samningur hans við Liverpool rennur út um næstu mánaðamót. Þetta hefur Brighton staðfest en Milner gerir eins árs samning með möguleika á ári til viðbótar.
Milner er 37 ára og vann úrvalsdeildina, Meistaradeildina, FA-bikarinn og fleiri titla með Liverpool.
„Ég er afskaplega ánægður með að bjóða James velkominn til Brighton. Hann er frábær viðbót við okkar lið," segir Roberto De Zerbi, stjóri Brighton.
Milner er þriðji leikjahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 619 leiki, aðeins Gareth Barry (652) og Ryan Giggs (632) hafa leikið fleiri.

Welcome to #BHAFC, @JamesMilner! ???? pic.twitter.com/dtziUeed53
— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) June 14, 2023