Fotbolti.net
14.06.23 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Sevilla festir kaup á Loic Badé (Staðfest)

Badé og Youssef En-Nesyri fögnuðu sigri gegn Juventus í undanúrslitum Evrópudeildarinnar innilega.

Badé og Youssef En-Nesyri fögnuðu sigri gegn Juventus í undanúrslitum Evrópudeildarinnar innilega.

Canon

Mynd: EPA

Sevilla er búið að staðfesta kaup á franska varnarmanninum Loic Badé frá Rennes.

Sevilla borgar um 12 milljónir evra fyrir Bade sem er 23 ára gamall miðvörður og gerði flotta hluti á láni hjá Sevilla á nýliðinni leiktíð.

Varnarmaðurinn varði fyrri hluta síðustu leiktíðar á láni hjá Nottingham Forest en fékk aldrei tækifæri undir stjórn Steve Cooper. Ákveðið var að binda enda á lánið í janúarglugganum og hélt Badé beint til Sevilla, þar sem hann rataði beinustu leið inn í byrjunarliðið og leysti lykilhlutverk af hólmi.

Sevilla gekk gríðarlega vel eftir komu Badé til félagsins og stóð uppi sem sigurvegari í Evrópudeildinni.

Spænska félagið ákvað því að nýta sér ákvæði í lánssamningi leikmannsins til að kaupa hann af Rennes.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.