Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 10:35
Kári Snorrason
Barcelona gefur út yfirlýsingu eftir ásakanir Perez
Florentino Perez forseti Real Madrid og Joan Laporta forseti Barcelona.
Florentino Perez forseti Real Madrid og Joan Laporta forseti Barcelona.
Mynd: EPA
Barcelona hefur gefið út yfirlýsingu eftir ásakanir Florentino Perez, forseta Real Madrid, í gær. Perez hélt vægast sagt áhugaverðan fréttamannafund í gærkvöldi þar sem hann fór um víðan völl.

Flestir bjuggust við að José Mourinho yrði mögulega kynntur sem nýr þjálfari en sá spænski hafði lítinn áhuga að ræða það.

Perez sagðist ætla útbúa 500 blaðsíðna skýrslu og senda til UEFA eftir að upp komst um leynilegar greiðslur Barcelona til varaformanns dómaranefndar á Spáni.

„Þetta er íþróttaspillingarmál, og það eru enn eftirmálar af því. Það eru dómarar frá því tímabili enn að dæma í deildinni,“ sagði Perez meðal annars.

Börsungar gáfu út yfirlýsingu vegna ummælana sem sagði að lagadeild félagsins væri að fara gaumgæfilega yfir ásakanir Perez. Þegar það verður komið á hreint verði svo tilkynnt um næstu skref.


Slapp
banner
banner
banner