Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 14. júlí 2020 21:21
Brynjar Ingi Erluson
England: Giroud hetjan á Stamford Bridge
Olivier Giroud stangaði boltann í netið
Olivier Giroud stangaði boltann í netið
Mynd: Getty Images
Chelsea 1 - 0 Norwich
1-0 Olivier Giroud ('45 )

Chelsea lagði Norwich að velli, 1-0, í 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld en leikurinn fór fram á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea.

Chelsea er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti á meðan Norwich féll niður í B-deildina á dögunum og því töluvert minni pressa á gestunum fyrir þennan leik.

Norwich spilaði fínan varnarleik í fyrri hálfleiknum en ógnaði þó lítið fram á við. Olivier Giroud tókst að koma Chelsea yfir undir lok fyrri hálfleiks eftir fyrirgjöf frá Christian Pulisic. Laglegur skalli hjá franska framherjanum.

Giroud var nálægt því að bæta við öðru undir lok leiksins en hann skaut framhjá markinu eftir laglega fyrirgjöf frá Willian.

Chelsea fer með sigur af hólmi og er liðið nú með 63 stig í 3. sæti, fjórum stigum á undan Leicester og Manchester United sem eiga leik inni. Næsti leikur Chelsea er gegn Liverpool á Anfield.
Athugasemdir
banner
banner
banner