Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 14. júlí 2020 19:59
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi Max-kvenna: Fyrsti sigur FH kom á Akureyri
Madison Santana Gonzalez skoraði sigurmark FH
Madison Santana Gonzalez skoraði sigurmark FH
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Þór/KA 0 - 1 FH
0-1 Madison Santana Gonzalez ('85 )
Lestu um leikinn

FH vann sinn fyrsta sigur á Íslandsmótinu í kvöld er liðið lagði Þór/KA að velli, 1-0, er liðin mættust á Þórsvellinum.

FH hafði tapað öllum fjórum leikjum sínum í deildinni fram að leiknum í kvöld á meðan Þór/KA hafði unnið tvo og tapað einum.

Gestirnir voru betra liðið í fyrri hálfleiknum en eina mark leiksins kom ekki fyrr en á 85. mínútu. Harpa Jóhannsdóttir gerði sig þá seka um slæm mistök í markinu er hún reyndi að sóla sig úr vandræðum en það vildi ekki betur en að Madison Santana Gonzalez rændi af henni boltanum og skoraði í autt markið.

Gríðarlega stór sigur hjá FH og jafnframt fyrsti sigurinn í sumar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner