Fotbolti.net
14.07.22 - 16:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arnór Sig mættur aftur til Norrköpping (Staðfest)

Arnór Sig mættur aftur til Norrköpping (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænska félagið Norrköping hefur staðfest að Arnór Sigurðsson er genginn aftur til liðs við félagið.

Arnór lék með liðinu árin 2017-2018 áður en hann hélt til Rússlands en hann hefur verið á mála hjá CSKA Moskvu síðan. Hann var á láni hjá Venezia á Ítalíu á síðustu leiktíð en spilaði lítið.

Arnór, sem er 23 ára gamall, nýtti sér á dögunum sérstakt vinnuúrræði FIFA og frysti samning sinn við rússneska félagið CSKA Moskvu um eitt ár.

Arnór lék 66 leiki fyrir CSKA og skoraði 11 mörk. Hann á 21 landsleik fyrir Íslands hönd og skorað í þeim tvö mörk.

„Það er góð tilfinning að vera kominn heim. Félagið hefur verið í brasi og ég vil hjálpa þeim að komast þangað sem við eigum að vera, ég vil spila góðan bolta," sagði Arnór við undirskriftina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.