Sandra ánægð með eigin frammistöðu - „Hefði viljað halda hreinu"
Auglýsing

Sandra Sigurðardóttir átti góðan leik í marki Íslands

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra Sigurðardóttir, markvörður íslenska landsliðsins, var súr með 1-1 jafnteflið við Ítalíu í Evrópumótinu í kvöld, en hefur trú á að liðið nái hagstæðum úrslitum í lokaumferðinni gegn Frökkum.
Lestu um leikinn: Ítalía 1 - 1 Ísland
Íslenska landsliðskonan átti stórleik í marki Íslands og varði nokkrum sinnum vel.
Hún var örugg í öllum sínum aðgerðum en gat ekki komið í veg fyrir jöfnunarmark Ítalíu eftir klukkutímaleik.
„Við erum auðvitað smá súrar. Við ætluðum okkur þrjú stig úr þessum leik, það tókst ekki, en við getum verið stoltar."
„Jú, mér líður ágætlega eftir þennan leik með eigin frammistöðu en hefði auðvitað viljað halda hreinu. Það hefði verið geggjað en svona er þetta bara," sagði Sandra við Fótbolta.net.
Sandra segir súrt að hafa gert jafntefli en er bjartsýn fyrir lokaleikinn gegn Frökkum í riðlinum.
„Auðvitað er það súrt, en hins vegar erum við að fá færi. Fótboltinn er svona. Við lærum af þessu og vonandi náum við að gíra okkur vel í síðasta leikinn."
„Við þurfum að sjá hvernig þessi leikur fer í kvöld og svo förum við yfir okkar mál. Við förum í þann leik til að vinna hann, það er allt hægt," sagði hún í lokin.