14.07.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ungur miðjumaður frá Hveragerði í Selfoss (Staðfest)


Mynd: Aðsend


Mynd: Aðsend
Óliver Þorkelsson hefur gert samning við Selfoss og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Óliver er fæddur árið 2005 og er miðjumaður. Hann kemur til liðsins frá De Graafschap í Hollandi þar sem hann var á láni frá Hamri í Hveragerði.
Hann lék 18 leiki í fjórðu deildinni síðasta sumar.
„Ég er mjög ánægður með það að vera kominn á Selfoss og er spenntur fyrir því sem er í gangi hjá félaginu. Aðstæðurnar gætu í raun ekki verið betri og allt í kringum félagið er fyrsta flokks,“ sagði Óliver við undirskriftina
Hann var í leikmannahópi liðsins um síðustu helgi þegar liðið lagði KV á útivelli 2-1. Selfoss er í harðri toppbaráttu en liðið er í 2. sæti með jafn mörg stig og Fylkir.
