Fotbolti.net
14.07.26 - 20:47
Snæbjört Pálsdóttir

Alli Jói: Yfirlýsingar ekki tímabærar en það verður eitthvað að frétta frá Þór/KA

Auglýsing
Aðalsteinn Jóhann Guðmundsson segir Þór/KA hafa gert sér erfitt fyrir í 3-2 tapi gegn Stjörnunni en staðfestir að eitthvað verði að frétta hjá félaginu í félagaskiptaglugganum.

Aðalsteinn Jóhann Guðmundsson segir Þór/KA hafa gert sér erfitt fyrir í 3-2 tapi gegn Stjörnunni en staðfestir að eitthvað verði að frétta hjá félaginu í félagaskiptaglugganum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Þór/KA tapaði 3-2 gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í kvöld í 12. umferð Bestu deildarinnar. Norðankonur komu inn í leikinn eftir þrjá leiki í röð án taps en náðu ekki að fylgja því eftir í Garðabænum.

Aðalsteinn Jóhann Guðmundsson, þjálfari Þórs/KA, var svekktur eftir leik.

„Við erum svekktar. Frammistaðan okkar í heildina var kannski ekki alveg nógu góð. Við erum að koma úr þremur leikjum þar sem við náðum í tvo sigra og eitt jafntefli og okkur tókst það ekki í dag.

Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 2 Þór/KA

Þór/KA byrjaði báða hálfleiki illa en náði í bæði skiptin að vinna sig aftur inn í leikinn.

„Við byrjum leikinn mjög illa, vinnum okkur inn í fyrri hálfleikinn og jöfnum. Svo byrjum við seinni hálfleikinn aftur mjög illa en aftur vinnum við okkur inn í leikinn, minnkum muninn restina inn á og fáum hálfséns til þess að jafna leikinn alveg á síðustu metrunum.“

„Við gerðum okkur þetta erfitt fyrir í dag.“

„Þetta er auðvitað hrikalega erfitt mót því það er rosalega skrítinn taktur í því. Það eru langar pásur milli leikja og svo hraðmót þess á milli.“

„Í grunninn höfum við verið að reyna að finna jafnvægi milli þess að æfa vel og gefa slaka þess á milli. Við höfum fundið takt og ákveðin gildi sem við höfum verið að vinna eftir en því miður fórum við aðeins út frá þeim í dag.

Félagsskiptaglugginn opnar á fimmtudaginn og Aðalsteinn segir eitthvað vera í kortunum hjá Þór/KA.

„Það verður eitthvað að frétta hjá okkur. Það er kannski ekki tímabært að vera með einhverjar yfirlýsingar akkúrat núna en það verður eitthvað að frétta frá Þór/KA.“

Þrátt fyrir það segir hann áhersluna fyrst og fremst vera á þá leikmenn sem eru til staðar.

„Númer eitt, tvö og þrjú eru alltaf leikmennirnir sem eru til staðar hverju sinni.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.