Fotbolti.net
14.08.13 - 18:36
Magnús Már Einarsson

Tom Huddlestone og Jake Livermore til Hull (Staðfest)

Tom Huddlestone.

Tom Huddlestone.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Hull City hafa fengið miðjumennina Tom Huddlestone og Jake Livermore frá Tottenham.

Huddlestone kemur til Hull á um það bil fimm milljónir punda en hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið.

Þessi 26 ára gamli leikmaður var í átta tímabil hjá Tottenham en hann náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliðinu hjá Andre Villas-Boas.
Hinn 23 ára gamli Livermore er uppalinn hjá Tottenham en hann kemur til Hull á láni.

Báðir leikmennirnir gætu leikið sinn fyrsta leik með Hull þegar liðið mætir Chelsea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina.

Heimild: BBC

Jake Livermore.

Jake Livermore.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.