Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. ágúst 2018 06:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Bróðir Zouma og Marcus Wood til Bolton (Staðfest)
Yngri bróðir Zouma er kominn til Bolton.
Yngri bróðir Zouma er kominn til Bolton.
Mynd: Getty Images
Bolton hefur gengið frá félagsskiptum á tveimur nýjum leikmönnum, þeim Yoan Zouma og Marcus Wood.

Zouma er 20 ára gamall varnarmaður sem skrifar undir tveggja ára samning við Bolton en hann kemur frá Angers sem spilar í Ligue 1 í Frakklandi. Hann er einmitt yngri bróðir Kurt Zouma sem spilar í ensku úrvalsdeildinni.

Þá hefur Marcus Wood einnig gengið til liðs við Bolton frá Manchester City eftir að hafa yfirgefið síðarnefnda félagið á þessu tímabili.

Bolton spilar í Championship deildinni á þessari leiktíð líkt og á þeirri síðustu þar sem þeir lentu í 21. sæti deildarinnar og rétt sluppu við fall.
Athugasemdir
banner