Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 14. ágúst 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Eto'o til Katar (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hinn 37 ára gamli Samuel Eto'o hefur samið við Katar Sports Club en félagið staðfesti þetta í dag

Eto'o verður sjálfur kynntur til sögunnar á fréttamannafundi í Katar í dag.

Eto'o var síðast hjá Konyaspor í Tyrklandi en hann losnaði undan samningi þaðan í síðasta mánuði.

Í Katar mun Eto'o meðal annars mæta Xavi og Wesley Sneijder, fyrrum liðsfélögum sínum hjá Barcelona og Inter.

Eto'o hefur komið víða við á ferli sínum en hann spilaði einnig með Chelsea og Everton á Englandi sem og í Rússlandi á sínum tíma.
Athugasemdir
banner