Jose Arnaiz hefur yfirgefið Barcelona og gengið til liðs við Leganes fyrir fimm milljónir evra, Barcelona getur þó keypt leikmanninn til baka óski þeir eftir því.
Ungstirnið skoraði þrjú mörk í Copa Del Rey bikarnum á síðasta tímabili en hefur nú yfirgefið félagið. Arnaiz kom til liðsins frá Real Valladolid fyrir ári síðan og spilaði mest fyrir varalið Barcelona.
Þessum 23. ára gamla leikmanni tókst þó ekki að brjóta sér leið inn í aðallið Barcelona og spilaði aðeins einn leik á síðasta tímabili í La Liga. Hann meiddist einnig og var frá í fjóra mánuði.
José Arnáiz joins CD Leganés. His presentarion will be at ID Butarque next Thursday (11:30 h. CEST) ➡️ https://t.co/RA060ROgdn
— C.D. Leganés 🇺🇸🇬🇧 (@CDLeganes_en) August 13, 2018
Welcome @josearnaiz35! pic.twitter.com/cPVilh3Dsq
Athugasemdir