Orri Hjaltalín: Margir sem sýndu þessu verkefni alltof lítinn áhuga
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er gríðarlega vonsvikinn og bið bara okkar stuðningsmenn afsökunar. Þetta var ekki boðlegt fyrstu 45 mínúturnar þótt við hefðum reynt að klóra aðeins í bakkann í seinni." Sagði Orri Freyr Hjaltalín þjálfari Þórs eftir 0-2 tap gegn Víkingi Ólafsvík í dag.
Orri sakaði nokkra leikmenn liðsins um áhugaleysi í dag.
„Við vorum með alltof marga leikmenn sem sýndu þessu verkefni alltof lítinn áhuga og komu mjög kærulausir til leiks og við lentum verðskuldað yfir í fyrri hálfleik og það var erfitt að klóra sér upp úr því."
„Við lögðum upp með ákveðið leikplan að vera þolinmóðir á boltann auk nokkurra annarra hluta en það var ekki farið eftir þeim fyrirmælum í dag."
Það hefur gengið illa hjá Þór að undanförnu en liðið hefur tapað þremur deildarleikjum í röð auk þess að falla úr leik í bikarnum í vikunni. Orri hefur ekki áhyggjur af því.
„Það er alltaf vont að tapa, ég hef meiri áhyggjur af því hvernig við erum að spila þessa leiki. Þetta var þriðji leikurinn okkar í vikunni, við fáum smá tíma til að undirbúa okkur fyrir Vestmannaeyjar hér heima og ég skal lofa því að það kemur annað og betra Þórs lið út í þann leik en við sýndum hér í dag."