Enski varnarmaðurinn Fikayo Tomori er búinn að gera nýjan samning við AC Milan sem gildir næstu fimm árin.
Tomori var keyptur frá Chelsea í fyrra eftir að hafa staðið sig vel á láni og varð strax ómissandi partur af byrjunarliði Ítalíumeistaranna.
Tomori, Mike Maignan og Pierre Kalulu mynduðu ótrúlega sterkan varnarmúr á síðustu leiktíð sem gerði Milan kleift að hampa Ítalíumeistaratitlinum. Þeir fengu hjálp frá mönnum eins og Theo Hernandez og Rafael Leao en ljóst er að samkeppnin í Serie A mun einungis aukast í ár.
Milan borgaði um 30 milljónir evra fyrir Tomori en myndi ekki selja hann fyrir minna en 70 milljónir í dag.
Tomori er 24 ára gamall og á þrjá landsleiki að baki fyrir England eftir að hafa verið lykilmaður í U20 og U21 liðunum.
Athugasemdir