Fotbolti.net
14.08.23 - 21:40
Matthías Freyr Matthíasson

Rúnar Páll: Bara barnalegt

Auglýsing
Rúnar Páll: Bara barnalegt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bara mjög slæmt tap. Mér fannst við mun verra liðið í dag og Stjarnan rúllaði bara yfir okkur. Við áttum ágætis 10 - 15 mínútur í seinni hálfleik þar sem við reyndum að setja mark á þá og vorum nálægt því. Fengum ágætis sóknir og pressumóment og hættulegar aukaspyrnur sem kom ekkert út úr sagði svekktur Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis eftir slæmt 0 - 4 tap gegn Stjörnunni í kvöld.

Þriðja markið hjá Emil er stórkostlegt og það er alltaf þetta þriðja mark, það er alltaf vinsælt. Já já, Stjarnan átti þetta fyllilega skilið. Eina sem við þurfum að gera er að núllstilla okkur og vera klárir á móti ÍBV.

Við áttum bara ekki séns í þá. Við vorum í vandræðum með að loka á þá. Eins og fyrsta markið, kemur einhver sending á Emil og eitthvað drop hjá okkur og þá kemur Emil eftir einhver fimmtíu metra hlaup í gegnum allt hjá okkur. Bara barnalegt. Það var búið að opna vörnina hægri vinstri hjá okkur. Við vorum bara langt frá þeim.  

Nánar er rætt við Rúnar Pál hér að ofan og meðal annars um leikmannamál Fylkis.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.