14.08.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Hættir við skiptin og endurnýjar ekki kynnin við Orra Stein

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Nayef Aguerd hefur hætt við að ganga til liðs við Real Sociedad þrátt fyrir að hafa samið við félagið og staðist læknisskoðun.
Real Sociedad náði samkomulagi við Marseille um að fá Aguerd að láni fyrir tvær milljónir evra. Í samningnum átti að vera sautján milljóna evra kaupákvæði.
Aguerd hélt til Spánar og stóðst læknisskoðun án vandræða. Eftir hana hætti hann hins vegar óvænt við félagaskiptin þar sem hann og Pellegrino Matarazzo, þjálfari Sociedad, voru ekki á sömu blaðsíðu um spilatímann.
Matarazzo vildi að Aguerd yrði klár í næstu leiki en varnarmaðurinn treysti sér ekki til þess þar sem hann er að stíga upp úr meiðslum.
Hann ákvað því að hlusta á líkamann. Aguerd vill byggja sig smám saman upp í stað þess að vera kastað beint í djúpu laugina og eiga á hættu að meiðast aftur.
Aguerd er þrítugur landsliðsmaður Marokkó og lék með Real Sociedad tímabilið 2024-2025. Hann var þá liðsfélagi Orra Steins Óskarssonar en nú er ljóst að þeir endurnýja ekki kynnin á komandi tímabili.