Fotbolti.net
13.08.26 - 23:36
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu frábært mark Gylfa - „Síðasti maðurinn í heiminum sem þú vilt fá á móti þér í þessu skotfæri“

Gylfi skoraði geggjað mark í kvöld

Gylfi skoraði geggjað mark í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði glæsilegt mark í 3-2 sigri Víkinga á Thun í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Gylfi: Ég er með frekar vonlausan þumal
TENGT EFNI

Gylfi: Ég er með frekar vonlausan þumal

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 Thun
Landsliðsmaðurinn kom Víkingum aftur inn í einvígið eftir að liðið hafði lent undir snemma leiks.

Gylfi fékk boltann fyrir utan teiginn, lagði hann fyrir vinstri fótinn og skrúfaði þéttingsfast skot í vinstra hornið.

„Eins Gylfalegt mark og það verður hreinlega. Alvöru mark frá alvöru leikmanni og síðasti maðurinn í heiminum sem þú vilt fá á móti þér í skotfæri þarna“ sagði Guðmundur Benediktsson í lýsingunni á Sýn Sport.

Hann hefur verið frábær með Víkingum í sumar og skorað átta mörk í Bestu deildinni. Þetta var jafnframt fyrsta mark hans í Evrópukeppni á tímabilinu.

Víkingar fóru ekki áfram, en Evrópudraumurinn er ekki úti því þeir fara niður í umspil Sambandsdeildarinnar þar sem liðið spila við Borac Banja Luka frá Bosníu og Hersegóvínu. Þar eiga Víkingar möguleika á að komast í deildarkeppnina í annað sinn í sögu félagsins.


Vikingur Reykjavik [1] - 1 FC Thun - Gylfi Sigurdsson 16' (great goal)
by
u/Ryponagar in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.