13.08.26
Spáin fyrir enska - 10. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Núna er komið að liðinu sem er spáð tíunda sæti í sérstakri spá fréttafólks Fótbolta.net fyrir komandi keppnistímabil í ensku úrvalsdeildinni en það er Newcastle.
Newcastle fer inn í nýtt tímabil á tímamótum. Eftir vonbrigðatímabil þar sem liðið endaði aðeins í 12. sæti hefur félagið farið í gegnum miklar breytingar að undanförnu. Eddie Howe ákvað nýverið að hætta eftir farsælan tíma hjá félaginu og Matthias Jaissle hefur tekið við sem stjóri liðsins. Samhliða því hafa nokkrir af bestu leikmönnum liðsins yfirgefið St. James' Park, þar á meðal Bruno Guimaraes, sem skilur eftir sig stórt skarð bæði innan vallar og utan.
Newcastle vill byggja upp yngra og orkumeira lið sem getur aftur blandað sér í baráttuna um Evrópusæti. Jaissle kemur með skýra hugmyndafræði sem byggir á hárri pressu, miklum hraða og árásargirni, en hann fær takmarkaðan tíma til að koma sínum hugmyndum á framfæri áður en tímabilið hefst.
Spurningin er hvort Newcastle geti tekist að snúa blaðinu við strax eða hvort breytingarnar taki tíma. Leikmannahópurinn býr enn yfir miklum gæðum, en eftir viðburðaríkt sumar eru væntingarnar hófstilltari en undanfarin ár.
Stjórinn: Matthias Jaissle tekur við einu áhugaverðasta starfi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að Eddie Howe lét af störfum á miðju undirbúningstímabili. Þjóðverjinn vakti fyrst athygli hjá RB Salzburg þar sem hann vann bæði deild og bikar áður en hann hélt til Al-Ahli í Sádi-Arabíu og vann Asíumeistaradeildina. Jaissle er þekktur fyrir áræðinn og orkumikinn leikstíl með mikilli pressu og hröðum sóknum, hugmyndafræði sem fellur vel að þeim leikmönnum sem Newcastle hefur yfir að ráða. Verkefnið verður þó krefjandi þar sem hann þarf að leiða félagið inn í nýtt tímabil eftir stórar breytingar á leikmannahópnum.

Mynd: Newcastle United
Leikmannaglugginn: Það hefur mikið gerst hjá Newcastle í sumar en stórir póstar eru farnir í önnur félög í ensku úrvalsdeildinni. Í staðinn hefur Newcastle sótt unga og spennandi leikmenn sem eiga þó eftir að sanna sig í sterkustu deild heims.
Komnir:
Bazoumana Touré frá Hoffenheim - 43 milljónir punda
Aladji Bamba frá Mónakó - 30 milljónir punda
Lukas Hornicek frá Braga - 25,7 milljónir punda
Ewen Jaouen frá Reims 21,6 milljónir punda
Sean Steur frá Ajax - 20 milljónir punda
Farnir:
Sandro Tonali til Tottenham - 92,5 milljónir punda
Bruno Guimaraes til Arsenal - 75 milljónir punda
Anthony Gordon til Barcelona - 69,3 milljónir punda
Matt Targett til Hull City - Á frjálsri sölu
Kieran Trippier til Wolves - Á frjálsri sölu
Líklegt byrjunarlið

Mynd: EPA
Lykilmaður: Lewis Hall
Einn besti vinstri bakvörður ensku úrvalsdeildarinnar. Hefur undanfarið verið orðaður við Manchester United en Newcastle vill skiljanlega ekki missa hann eins og marga aðra leikmenn í sumar. Hall er öflugur bæði varnar- og sóknarlega en hann lék mjög vel með Newcastle á síðasta tímabili. Það var í raun með hreinum ólíkindum að hann var ekki í enska landsliðshópnum á HM í sumar.
Gaman að fylgjast með: Aladji Bamba
Newcastle greiddi umtalsverða upphæð fyrir þennan tvítuga miðjumann frá Mónakó, þrátt fyrir að hann hafi aðeins spilað 25 leiki með aðalliði félagsins. Bamba er franskur U20 landsliðsmaður sem hefur vakið mikla athygli fyrir kraft, tækni og yfirburði á miðsvæðinu og margir í Frakklandi hafa jafnvel líkt honum við Paul Pogba á hans yngri árum.
Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan er að Newcastle finni fljótt taktinn undir stjórn Jaissle, spili góðan fótbolta og endi í efri hlutanum. Versta niðurstaðan er að nýju leikmennirnir finni ekki fjölina sína strax og þetta tímabili verði mikið ströggl og liðið endi neðar en á síðustu leiktíð.
Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Newcastle, 128 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Newcastle, 128 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig

Mynd: Newcastle