Fotbolti.net
13.08.26 - 22:33
Gylfi Már Þórðarson

Rúnar Páll: Við sáum ekki til sólar í fyrri hálfleik

Auglýsing
Rúnar Páll Sigmundsson - þjálfari Gróttu

Rúnar Páll Sigmundsson - þjálfari Gróttu

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Lengjudeildin
Grótta tók á móti Njarðvík á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi í 18. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. Voru það gestirnir frá Njarðvík sem fóru heim með stigin þrjú eftir öruggan 1-4 sigur. Gestirnir yfirspiluðu heimamenn á löngum köflum í fyrri hálfleik og var Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu hreinskilinn í leikslok:
Lestu um leikinn: Grótta 1 - 4 Njarðvík
"Við ætluðum að vera á pari við þá í baráttunni en við vorum undir í því í fyrri hálfleik og þeir keyrðu yfir okkur. Við sáum ekki til sólar í fyrri hálfleik, Njarðvík var miklu betra lið. Við áttum ekkert skilið úr þeim hálfleik. Þeir skoruðu fjögur fín mörk og þrátt fyrir að við höfum fengið tvær ágætis sóknir sem við hefðum getað nýtt aðeins betur. Við komum ágætlega öflugir inn í seinni hálfleikinn, mér fannst hann ganga betur hjá okkur, þeir höfðu ekki eins auðvelt fyrir honum allavega. Mér fannst Njarðvíkingarnir bara alveg hrikalega öflugir og við réðum bara ekkert við þá. Ég óska Njarðvík til hamingju með þennan sigur, þeir voru öflugir í dag og betri en við. Við vorum klárir í það að við þyrftum að mæta þeim í baráttunni, vinnuseminni og dugnaðnum en við vorum bara undir þar. Þeir voru sterkari en við þar. Stundum er það bara þannig og við getum lært af þessum leik."

Grótta er fimm stigum frá 5. sæti sem gefur síðasta farmiðann í umspilið. Telur Rúnar að Grótta geti náð því að loknum 22 umferðum?

"Við erum ekkert að stefna á það. Við ætlum að eiga góða leiki það sem eftir er móts og sjá hvert það leiðir okkur. Það er stutt í næsta leik gegn Grindavík á mánudag, við þurfum að endurheimta okkur og vera klárir í baráttuslag gegn Grindavík, hugsum um einn leik í einu og sjáum hvert það leiðir okkur."

Rúnar Páll fékk rautt spald undir lok leiks þegar hann átti í orðaskiptum við Twana dómara.

"Það snerist ekkert um dómgæsluna þannig séð, það var bara hvernig línuvörðurinn talaði við leikmann hjá mér, ég var ósáttur við það. "

Allt viðtalið við Rúnar Pál má finna í spilaranum hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.