13.08.26 - 22:45
Magnús Atlason
Heimir vildi ekki tjá sig um KA: Menn lögðu líf og sál í þetta
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir og Afturelding skildu jöfn í 6 marka jafntefli í Árbænum í kvöld. Fótbolti.net náði tali af Heimi Guðjónssyni þjálfara Fylkis eftir leik.
"Vonbrigði að hafa ekki fengið 3 stig á heimavelli en mér fannst við góðir í kvöld öfugt við síðustu 3 leiki. Menn soldið vildu þetta og lögðu líf og sál í þetta og það var jákvætt."
Fylkir skoraði sigurmark undir lok leiks sem var síðan dæmt af vegna rangstöðu. Hvað fannst Heimi um það?
"Ég á eftir að sjá þetta aftur en ég held að þetta sé örugglega mjög tæpt. En eins og ég segi ég sé þetta ekki þar sem ég stend, en tæpt held ég."
Næsti leikur Fylkis er annar mikilvægur leikur gegn Þrótti. Verður undirbúningurinn svipaður og fyrir þennan leik?
"Þróttararnir með frábært lið og góðan þjálfara. Töpuðum fyrir þeim á heimavelli sanngjarnt í fyrri umferðinni og við þurfum að gera betur í Laugardalnum á mánudaginn og undirbúa þann leik vel."
Nýverið birtist frétt þar sem Heimir var orðaður við KA. "Gætirðu eitthvað tjáð þig um það?"
"Nei."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum efst í fréttinni.