Fotbolti.net
14.09.22 - 19:17
Brynjar Ingi Erluson

Sif Atla áfram á Selfossi - Skrifaði undir tveggja ára samning (Staðfest)

Sif Atladóttir verður áfram á Selfossi

Sif Atladóttir verður áfram á Selfossi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Íslenska landsliðskonan Sif Atladótir framlengdi í dag samning sinn við Selfoss til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Sif gekk í raðir Selfyssinga fyrir tímabilið frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstad, en áður hafði áður spilað fyrir Saarbrücken, Val, Þrótt R., KR og FH.

Hún hefur spilað alla 15 leiki Selfyssinga í Bestu deildinni á þessu tímabili og nú er ljóst að hún verður hjá félaginu til næstu tveggja ára en hún skrifaði undir framlengingu á samningi sínum í dag.

Sif, sem er 37 ára gömul, var hluti af íslenska landsliðshópnum sem fór á Evrópumótið á Englandi í sumar. Hún á 90 landsleiki að baki.

„Það er gott að vera á Selfossi. Vegferðin heldur áfram og ég hlakka til að halda áfram að vinna með liðinu að bæta okkar leik. Við höfum verið að taka stór skref í sumar og verður gaman að bæta í það á komandi ári," sagði Sif við undirskrift.

Selfoss er í 6. sæti með 22 stig eftir fimmtán umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.