Arnór Ingvi: Finnur fyrir jákvæðara andrúmslofti
Auglýsing

Arnór Ingvi Traustason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi Traustason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við ætlum að gera mun betur en seinast. Fyrri frammistaðan var ekki boðleg, en við sýndum það gegn Frökkum að við erum búnir að fínpússa okkur."
Við förum inn í þennan leik gegn Sviss með fullt sjálfstraust," sagði Arnór Ingvi Traustason, leikmaður íslenska landsliðsins, í aðdraganda leiksins gegn Sviss í Þjóðadeildinni. Leikurinn er á Laugardalsvelli annað kvöld.

Ísland gerði 2-2 jafntefli gegn Heimsmeisturum Frakka á fimmtudag, eftir að hafa komist 2-0 yfir. Um vináttulandsleik var að ræða.
„Að hafa glutrað þessu niður á síðustu mínútunum er agalegt, en við tökum mjög margt jákvætt úr þessum leik," segir Arnór um leikinn gegn Frakklandi.
Eftir jafnteflið gegn Frakklandi hrökk miðasalan fyrir leikinn gegn Sviss í gang. Þegar Ísland komst í 1-0 seldust fjölmargir miðar.
„Ég skoða ekki mikið á netinu en maður finnur fyrir jákvæðara andrúmslofti."
„Það hjálpar okkur heilan helling og það yrði gaman að hafa fullan Laugardalsvöll."
„Við lærum af mistökum sem gerum í seinasta verkefni, við urðum að laga það. Mér finnst við hafa lagað margt í því sem var að, varðandi varnarfærslur og færslur á öllu, hvernig við höldum í bolta og þess háttar. Það hefur margt breyst."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan. Þar ræðir Arnór meðal annars um hvernig gengið hefur hjá Malmö í Svíþjóð.