Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 14. október 2020 07:00
Aksentije Milisic
Mane og Thiago byrjaðir að æfa á ný
Mynd: Getty Images
Sadio Mane og Thiago Alcantara sneru aftur til æfinga hjá Liverpool í gær en báðir þurftu þeir að vera í sóttkví eftir að hafa greinst með kórónuveiruna.

Þetta eru góðar fréttir fyrir Liverpool en liðið mætir Everton í stórleik í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn kemur.

Mane og Thiago brostu hringinn á Melwood æfingasvæðinu þegar þeir komu aftur til æfinga og nú þarf Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, að meta það hvort þeir séu báðir klárir í grannaslaginn.

Carlo Ancelotti og hans menn í Everton eru með fullt hús stiga í deildinni en Liverpool steinlá gegn Aston Villa í síðustu umferð, 7-2 tap.

Mane og Thiago misstu báðir af leiknum gegn Villa í síðasta leiknum fyrir landsleikjahlé.
Athugasemdir
banner
banner
banner