14.10.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Young um ummæli Martínez: Vill hann heilt lið?

Ashley Young og Marcus Rashford

Mynd: EPA

Lisandro Martínez

Mynd: EPA

Jason Wilcox (t.v. í þriðju röð) ásamt Sir Jim Ratcliffe, eiganda United

Mynd: EPA

Ashley Young og Marcus Rashford

Mynd: EPA
Ummæli Lisandro Martínez, varnarmanns Manchester United, verða eflaust mikið til umræðu næstu daga en hann gagnrýndi stjórnarmenn félagsins harðlega og sakaði þá um metnaðarleysi á félagaskiptamarkaðnum í sumar.

TENGT EFNI
„Ég ætla ekki að halda kjafti, annars mun ekkert breytast“
Manchester United styrkti miðjuna verulega í sumar þegar félagið fékk til sín Carlos Baleba, Youri Tielemans og Andrey Santos.
Martínez var þó langt frá því að vera ánægður með félagaskiptagluggann og gagnrýndi stjórnarmenn United fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega. Beindi hann gagnrýninni sérstaklega að Jason Wilcox, yfirmanni fótboltamála.
Jamie Carragher er á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt Martínez fyrir ummælin en Ashley Young, sem lék um árabil með United, segist skilja gremju Argentínumannsins. Hann bendir þó á að það taki tíma að byggja upp sterkan leikmannahóp.
„Fyrir leikinn ræddum við um að félagið þyrfti að fjárfesta meira í hópnum. En þeir hafa þegar keypt nokkra miðjumenn og geta ekki endalaust haldið áfram að kaupa leikmenn. Hvað vill hann eiginlega, heilt nýtt lið?“
„Félagið er ekki að fara að gera það. Það þarf að byrja einhvers staðar og styrkja ákveðnar stöður fyrst. Auðvitað hefði United getað keypt fleiri varnarmenn og sóknarmenn en það gerði það ekki.“
Young telur að tilfinningarnar hafi tekið yfir hjá Martínez eftir tapið gegn Atlético Madríd og að hann þurfi að sýna meiri þolinmæði.
„Hann var nýkominn af vellinum og þá eru tilfinningarnar miklar. Ég skil það alveg. En við vitum líka að þeir sem sjá um leikmannakaupin þurfa að vinna sína vinnu. Það þarf að gera betur á þeim vettvangi en þetta tekur tíma.“
„Leikmennirnir verða líka að átta sig á því að þeir eru hluti af þessum hópi og það er þeirra hlutverk að fara út á völlinn og standa sig. Það er ekkert að fara að breytast í leikmannahópnum héðan og fram í janúar,“ sagði Young.