Fotbolti.net
14.11.15 - 18:50
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá: Zilina í Slóvakíu

Hörður Björgvin: Held mig frá pastanu

Auglýsing
Hörður Björgvin Magnússon.

Hörður Björgvin Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

LG
„Það er alltaf gaman að hitta liðsfélagana og spila leiki,\" sagði Hörður Björgvin Magnússon þegar Fótbolta.net ræddi við hann í Zilina í Slóvakíu í kvöld.

Hörður hefur ekki átt sæti í landsliðinu að undanförnu en var valinn í hópinn fyrir leikina gegn Póllandi gegn Slóvakíu. Hörður getur spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður en í landsliðinu er horft á hann sem bakvörð.
„Ég er í vinstri bakvörður hérna í landsliðinu og vonandi gefur það mér aukið sjálfstraust því að það er ekki mikið um vinstri bakverði.\"

„Með landsliðinu er fínt að spila vinstri bakvörð. Ég er hafsent sem get spilað vinstri bakvörð og það er góður kostur.\"


Hörður Björgvin var á síðasta tímabili í láni hjá Cesena frá ítölsku meisturunum í Juventus. Cesena féll niður í Serie B í vor en Hörður kom aftur til félagsins á láni í sumar.

„Ég ákvað að fara aftur til þeirra til að fá að spila. Ég er bara búinn að spila þrjá leiki en við sjáum til hvað gerist fram að janúar glugganum,\" segir Hörður sem neitar því ekki að hann er ósáttur með spiltímann á þessu tímabili.

„Ég er gríðarlega ósáttur með það. Þjálfarinn tók sína menn frá sínu liði í fyrra og þeir spila í dag. Það eina sem ég get gert er að halda áfram. Þeir voru næstum því búnir að lofa að ég myndi spila mikið en það er ekki að ganga eins og er. Ég þarf bara að bíða rólegur,\" sagði Hörður en hann segir að Serie B sé sterk deild.

„Serie B er mjög sterk eins og er. Það eru mjög margir leikmenn sem hafa spilað í A-deildinni í B-deildinni og það eru mörg lið að berjast um að komast upp.\"

Hörður kom til Juventus frá Fram árið 2011 og hann er farinn að þekkja lífið á Ítalíu mjög vel.

„Mér líkar mjög vel á Ítalíu. Ítalskan er komin upp á níu. Matarmenningin er að verða þreytt og ég reyni að elda sem mest sjálfur heima. Ef ég væri að éta pasta alltaf væri ég orðinn mjög feitur. Ég held mig frá pastanu. Við borðum það samt einu sinni í viku, fyrir leiki,\" sagði Hörður léttur.

Hér að ofan má sjá viðtalið við Hörð í heild sinni en þar talar hann meira um lífið á Ítalíu.
Hörður Björgvin: Held mig frá pastanu
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.