Fotbolti.net
14.11.18 - 14:00
Fótbolti.net

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Belgíu - Mörg spurningamerki

Alfreð Finnbogason byrjar frammi.

Alfreð Finnbogason byrjar frammi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Það er þrautinni þyngri að tippa á byrjunarlið Íslands gegn Belgíu í Þjóðadeildinni annað kvöld. Tíu leikmenn eru á meiðslalistanum og ljóst er að nýir leikmenn fá tækifæri.
Fótbolti.net tippar á að Erik Hamren stilli upp í 4-5-1 á morgun. Hannes Þór Halldórsson verður í markinu samkvæmt spá Fótbolta.net en Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið að þjarma að honum undanfarið.

Birkir Már Sævarsson og Ragnar Sigurðsson eru fjarri góðu gamni í varnarlínunni. Ari Freyr Skúlason, sem er vanalega vinstri bakvörður, byrjar sem hægri bakvörður á morgun samkvæmt spá Fótbolta.net og þeir Kári Árnason og Sverrir Ingi Ingason verða í hjarta varnarinnar. Annar möguleiki er að Sverrir spili hægri bakvörð og Jón Guðni Fjóluson verði í miðverði með Kára.

Gífurlega mikil forföll eru á miðjusvæðinu en landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson spilar þó sinn fyrsta leik síðan á HM. Fótbolti.net spáir því að Guðlaugur Victor Pálsson og Arnór Sigurðsson verði með Aroni á miðjunni. Hinn 19 ára gamli Arnór gæti spilað sinn fyrsta landsleik á morgun. Rúrik Gíslason og Arnór Ingvi Traustason verða líklega á köntunum. Albert Guðmundsson gerir líka tilkall í liðið framarlega á miðju eða á kanti.

Alfreð Finnbogason verður síðan pottþétt frammi en hann hefur verið sjóðheitur í þýsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Fær Arnór Sigurðsson sénsinn á morgun?

Fær Arnór Sigurðsson sénsinn á morgun?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.