Síle 2 - 0 Perú
1-0 Arturo Vidal
2-0 Arturo Vidal
1-0 Arturo Vidal
2-0 Arturo Vidal
Arturo Vidal skoraði bæði mörk Síle í 2-0 sigri á Perú í undankeppni fyrir HM. Leikurinn fór fram í gærkvöldi. Vidal er 33 ára og er samningsbundinn Inter Milan.
Fyrra mark Vidal má sjá hér að neðan, það kom á 20. mínútu og var einkar laglegt. Hann fékk boltann frá Jean Meneses og lét vaða talsvert fyrir utan teig.
Skotið var algjörlega óverjandi fyrir markvörð Perú sem stóð hreyfingarlaus og horfði á. Seinna markið skoraði Vidal á 35. mínútu leiksins.
Síle er með fjögur stig eftir þrjá leiki á meðan Perú er með eitt stig.
⚽️😱 Este es el GO-LA-ZO que acaba de anotar Arturo Vidal en el Chile-Perú
— El Larguero (@ellarguero) November 13, 2020
¡Cohete va! 🚀🚀🚀🚀🚀#EliminatoriasSudamericanas pic.twitter.com/dTqGnprTSC
Athugasemdir