Lið vikunnar í enska - Þrír frá Man Utd

David De Gea (Manchester United) - Gjörsamlega stórkostlegur í sigri Manchester United á Tottenham. Varði ellefu skot í leiknum.

Mynd: Getty Images

James Tarkowski (Burnley) - Bjargaði sigrinum fyrir Burnley þegar hann bjargaði á línu. Var heilt yfir frábær í leiknum og stjórnaði vörn Burnley vel.

Mynd: Getty Images

Kurt Zouma (Everton) - Skoraði mark í leiknum með frábærum skalla. Hann er að ná hápunkti ferilsins nú um þessar mundir.

Mynd: Getty Images

Fabinho (Liverpool) - Hefur spilað miðvörð í síðustu leikjum og lítur í raun betur út þar en á miðjunni. Gerði lífið leitt fyrir sóknarmenn Brighton.

Mynd: Getty Images

Willian (Chelsea) -Vonandi fer Willian að sýna þessi gæði sem að hann sýndi á móti Newcastle. Frábært mark og var heilt yfir góður.

Mynd: Getty Images

Ademola Lookman (Everton) - Besta frammistaða hans til þessa fyrir Everton. Hljóp endalaust og átti frábæra sendingu á Calwert Lewin.

Mynd: Getty Images

Declan Rice (West Ham) - Frábær vika fyrir Rice. Varð 20 ára á mánudaginn og skoraði sigurmark gegn Arsenal á laugardag. Þessi leikmaður verður bara betri og betri.

Mynd: Getty Images

Paul Pogba (Manchester United) - Stoðsending Pogba á Rashford er í algjörum heimsklassa. Hefur heldur betur fundið sig undir stjórn Ole Gunnar.

Mynd: Getty Images

Andre Schurrle (Fulham) - Skoraði sennilega eitt flottasta mark ársins. Fulham þarf á Schurrle að halda í fallbaráttunni.

Mynd: Getty Images

Mo Salah (Liverpool) - Skoraði sigurmarkið fyrir toppliðið og gerði vel í vítaspyrnunni. Þess vegna er hann í lið umferðarinnar.

Mynd: Getty Images

Marcus Rashford (Manchester United) - Rashford getur orðið það sem hann vill. Eins og allir aðrir leikmenn United hefur hann stigið upp eftir komu Solskjær.

Mynd: Getty Images





