Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 15. janúar 2020 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Marca: Allt bendir til þess að Van de Beek fari til Real í sumar
Mynd: Getty Images
Real Madrid er sagt hafa náð samkomulagi við Ajax um kaup á Donny Van de Beek.

Van de Beek er sagður ganga í raðir Real í sumar og hann er talinn kosta um 55 milljónir evra samkvæmt heimildum Marca.

Marca segir frá því að Real hafi verið í viðræðum við Ajax frá síðasta sumri og allt sé svo gott sem klappað og klárt milli félaganna.

Manchester United hefur verið í miðjumannaleit undanfarið og var Donny orðaður við enska félagið en ef þessar fregnir frá Spáni eru réttar ætti United að einbeita sér að öðrum skotmörkum.

Sjá einnig:
Donny van de Beek fer líklega frá Ajax í sumar
Athugasemdir
banner
banner