Þrír á förum frá Man City - Dalot orðaður við Real Madrid - Framherji West Ham til Milan?
   fös 15. janúar 2021 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Liverpool mætir Man Utd í toppslag
Það er nóg um að vera í enska boltanum um helgina þar sem heil umferð fer fram frá laugardegi til mánudags.

Veislan hefst í hádeginu á morgun þegar Wolves og West Brom eigast við. Leeds tekur á móti Brighton á meðan Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley heimsækja West Ham. Chelsea kíkir svo til Fulham í Lundúnaslag áður en Leicester og Southampton eigast við í síðasta leik kvöldsins.

Leicester og Southampton eiga sér sögu eftir áhugaverðar rimmur á síðustu leiktíð, þar sem bæði lið unnu útileikina gegn hvoru öðru. Leicester skoraði níu mörk á St. Mary's leikvanginum og vann 0-9.

Á sunnudaginn á Tottenham útileik við botnlið Sheffield United áður en Liverpool og Manchester United eigast við í stórleik helgarinnar.

Liverpool og Man Utd gætu barist um titilinn í ár þar sem aðeins þrjú stig skilja liðin að á toppi deildarinnar. Manchester City er í þriðja sæti með leik til góða og eiga lærisveinar Pep Guardiola heimaleik við Crystal Palace sunnudagskvöldið.

Umferðinni lýkur svo mánudagskvöldið þegar Arsenal tekur á móti Newcastle.

Enski boltinn er sýndur á sportstöðvum Símans.

Laugardagur:
12:30 Wolves - West Brom
15:00 West Ham - Burnley
15:00 Leeds - Brighton
17:30 Fulham - Chelsea
20:00 Leicester - Southampton

Sunnudagur:
12:00 Aston Villa - Everton FRESTAÐ
14:05 Sheffield Utd - Tottenham
16:30 Liverpool - Man Utd
19:15 Man City - Crystal Palace

Mánudagur:
20:00 Arsenal - Newcastle
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 16 11 1 4 38 16 +22 34
3 Aston Villa 16 10 3 3 25 17 +8 33
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 16 7 5 4 20 15 +5 26
6 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
7 Sunderland 16 7 5 4 19 17 +2 26
8 Man Utd 15 7 4 4 26 22 +4 25
9 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
10 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
11 Tottenham 16 6 4 6 25 21 +4 22
12 Newcastle 16 6 4 6 21 20 +1 22
13 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
14 Bournemouth 15 5 5 5 21 24 -3 20
15 Brentford 16 6 2 8 22 25 -3 20
16 Nott. Forest 16 5 3 8 17 25 -8 18
17 Leeds 16 4 4 8 20 30 -10 16
18 West Ham 16 3 4 9 19 32 -13 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner