Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 15. janúar 2023 17:05
Aksentije Milisic
Ranieri táraðist fyrir fyrsta leikinn í endurkomunni
Mynd: EPA

Claudio Ranieri, þjálfarinn reynslumikli, tók við liði Cagliari á dögunum en hans fyrsti leikur í endurkomunni var í gær gegn Como í Serie B.


Ranieri gat ekki annað en tárast þegar hann mætti aftur á hliðarlínuna en hann var að snúa aftur til félagsins eftir 31 ár. Hann fékk góðar móttökur á vellinum.

Hann gerði ótrúlega hluti með liðið frá 1988 til 1991 en þá fór hann með það upp úr Serie C og í Serie A.

Þessi 71 árs gamli þjálfari hefur komið víða við á sínum ferli frá því hann stýrði Cagliari í fyrsta skipti.

Ranieri skrifaði undir samning til 2025 við Serie B liðið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner