Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 15. febrúar 2020 18:35
Brynjar Ingi Erluson
Alba meiddist í sigri Barcelona
Jordi Alba í leik með Barcelona
Jordi Alba í leik með Barcelona
Mynd: Getty Images
Spænski vinstr bakvörðurinn Jordi Alba meiddist í 2-1 sigri Barcelona á Getafe í spænsku úrvalsdeildinni í dag en hann þurfti að fara af velli á 22. mínútu.

Antoine Griezmann og Sergio Roberto sáu til þess að Barcelona myndi ná í sigur gegn Getafe í dag en það fór þó mikið bakslag fyrir liðið er Alba meiddist.

Hann meiddist aftan í læri á 22. mínútu og þurfti að fara af velli en Junior Firpo kom inn í hans stað.

Barcelona á mikilvægan leik gegn Napoli í fyrri leik liðanna gegn Napoli þann 25. febrúar og mun Alba að öllum líkindum missa af leiknum.

Hann bætist því á meiðslalista Barcelona en Luis Suarez og Ousmane Dembele eru einnig frá.

Barcelona er í 2. sæti með 52 stig eða jafnmörg og Real Madrid en Madrídingar eru með betri markatölu.
Athugasemdir
banner
banner