Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 15. febrúar 2020 16:35
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Norwich og Liverpool: Mane á bekknum
Mynd: Getty Images
Botnlið Norwich tekur á móti toppliði Liverpool í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Um er að ræða áhugaverða viðureign þar sem Liverpool er búið að vinna 24 og gera 1 jafntefli í fyrstu 25 umferðum deildartímabilsins.

Liverpool er með ótrúlega 22 stiga forystu á toppinum á meðan Norwich hefur gengið herfilega og er liðið sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni.

Byrjunarlið dagsins má sjá hér fyrir neðan og er ekki margt sem kemur á óvart. Norwich teflir fram óbreyttu liði eftir markalaust jafntefli gegn Newcastle í síðustu umferð.

Verðandi Englandsmeistarar gera eina breytingu á sínu liði sem vann 4-0 gegn Southampton. Naby Keita kemur inn fyrir Fabinho sem dettur á bekkinn.

James Milner og Sadio Mane hafa verið að glíma við meiðsli og byrja á bekknum í dag.

Norwich: Krul, Aarons, Hanley, Zimmermann, Byram, Tettey, McLean, Rupp, Duda, Cantwell, Pukki
Varamenn: Fahrmann, Godfrey, Vrancic, Hernandez, Lewis, Buendia, Drmic

Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Gomez, Van Dijk, Robertson, Wijnaldum, Henderson, Keita, Oxlade-Chamberlain, Salah, Firmino
Varamenn: Adrian, Fabinho, Lovren, Milner, Mane, Lallana, Origi
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner