KA og Fylkir gerðu 1-1 jafntefli í Lengjubikar karla í dag en mark KA var af dýrari gerðinni.
Almarr Ormarsson jafnaði leikinn með marki á 20. mínútu en hann þrumaði þá knettinum í netið af löngu færi.
Gjörsamlega óverjandi fyrir Aron Snæ Friðriksson en hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Almarr Ormarsson gerði mark KA gegn Fylki í 1-1 jafntefli liðanna í Lengjubikarnum í dag. Markið var vægast sagt af dýrari gerðinni og þess virði að sjá aftur og aftur! #LifiFyrirKA pic.twitter.com/9ZH6Vvjja9
— KA (@KAakureyri) February 15, 2020
Athugasemdir