Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 15. febrúar 2021 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Srdjan Rajkovic í þjálfarateymi Hauka
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Haukar hafa bætt starfsliðið sitt töluvert fyrir komandi sumar.

Srdjan Rajkovic og knattspyrnudeild Hauka hafa gert með sér samning þess efnis að Rajko verði markmannsþjálfari meistaraflokks karla og hefur hann nú þegar hafið störf.

Rajko er 44 ára og kom fyrst hingað til lands sem leikmaður 1999. Hann spilaði 337 leiki með félögum eins og Fjarðabyggð, Þór og KA. Hann var síðast aðstoðarþjálfari hjá Þrótti í Reykjavík.

„Rajko kemur með gríðarlega reynslu inn í þjálfarateymið og mun verða okkar markmönnum til halds og traust," segir í tilkynningu Hauka.

Þá hafa knattspyrnudeild Hauka gert samninga við tvo sjúkra- og styrktarþjálfara fyrir meistaraflokka karla og kvenna, þá Andra Pál Ásgeirsson og Arnór Gauta Haraldsson

Andri Páll og Arnór Gauti eru að ljúka grunnnámi (BSc) við sjúkraþjálfunarfræði Háskóla Íslands. Báðir hafa þeir reynslu við þjálfun innan Crossfit og ætla að leggja fyrir sér Íþróttasjúkraþjálfun seinna í náminu. Frábær reynsla fyrir þá drengi og vonandi erum við að byggja upp framtíðar sjúkraþjálfara félagsins enda leggja Haukar mikla áherslu á að vera með framúrskarandi þjálfara innan félagsins og byggja upp hágæða fótboltalið.

„Stjórn knattspyrnudeildar Hauka bindur miklar vonir við Rajko, Andra Pál og Arnór fyrir komandi keppnistímabil og býður þá innilega velkomna í félagið."

Haukar hafa bætt starfsliðið sitt töluvert fyrir komandi sumar.

Athugasemdir
banner
banner