Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. mars 2023 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Liverpool þarf kraftaverk á Bernabeu
Liverpool þarf kraftaverk á Spáni
Liverpool þarf kraftaverk á Spáni
Mynd: Getty Images
Real Madrid og Liverpool mætast í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Santiago Bernabeu klukkan 20:00 í kvöld.

Enska liðið byrjaði frábærlega gegn Madrídingum á Anfield og komst í 2-0, en Real Madrid gefur aldrei upp von. Liðið kom til baka og hafði 5-2 sigur.

Liverpool þarf kraftaverk til að komast áfram í 8-liða úrslit og vonast liðið eftir því að það eigi eitt af þessum sögulegu kvöldum í Meistaradeildinni eins og það hefur verið þekkt fyrir.

Napoli er þá í dauðafæri að komast áfram. Liðið vann Eintracht Frankfurt 2-0 í fyrri leiknum og mætir nú þýska liðinu á Diego Maradona-leikvanginum í Napolí.

Leikir dagsins:
20:00 Real Madrid - Liverpool
20:00 Napoli - Eintracht Frankfurt

Sambansdeildin:
17:00 Istanbul Basaksehir - Gent
Athugasemdir
banner
banner
banner